Wednesday, January 7, 2009

þrettándinn liðinn

er alveg magnað , enn einn afmælisdagurinn liðinn, þeir eru komnir upp í töluna 35.

Ég man þegar maður var yngri og sá 35 ára gamlar kellingar, þreyttar með gargandi börn út í búð, örugglega ný komnar úr vinnunni og búnar að sækja börnin á leikskólann að kaupa í kvöldmatinn til að elda fyrir gargandi krakkana og þreytta manninn sem enn var í vinnunni.

en ég er nú bara 27 enn þrátt fyrir afmælisdagana 35, fer ekki ofan af því :) Helga Dröfn bað um rökin, þau eru einföld :)

*pakkinn .. þessi sem langflestir fara í, kall, börn, húsið, dýri bíllinn, rólan í garðinum, lánin sem fylgja því, svefnlausar nætur, afbryðisemi, stress og áhyggjur. svooo margt sem veldur álagi á mann andlega og líkamlega og orsakar það að maður eldist og fær ótímabærar hrukkur ;)

*** ég hef forðast þennann pakka, er því ekki eins þroskuð (?) , stressuð og hrukkótt***

okey okey ég veit að margt margt fylgir þessum pakka sem er gott og yndislegt að sjálfsögðu

en mitt líf, í minni kósý ódýru íbúð, með minn kósý kött, í minni fínu vinnu (þar fæ ég útrás fyrir móðurtilfinningarnar) er alveg frábært. ég er sko ekki komin í neitt panick, er bara sátt og sæl með mitt líf núna, það er kannski helst stressandi hvað littli jepplingurinn minn breyttist skyndilega í rándýrann eðaljeppa, en það eru bara peningar.. Ég er í því hugarástandi að vera einungis svona ca. 27 ára.. Það sem ég er kanski ánægðust með er að vera ótrúlega hress og laus við einhver veikindi (vá okey þetta hljómar eins og ég sé 70 en eins og allir vita þá getur maður lent í veikindum á öllum aldri, ég veit það amk) okey núna er ég komin með verki í öxlina og rassinn á að sytja svona við tölvuna ætla því að láta þetta nægja í bili (hehehe)

takk fyrir allar kveðjurnar og símtölin í gær knús og kossar

3 comments:

Anonymous said...

Já aldur er afstæður og enginn er eldri en honum finnst, þetta er mín skoðun og ég er löngu hætt að telja en samt til hamingju með daginn þú ert afmælisbarn no 1 hjá ættinni að ég held eða hvað? kv Birna

Anna Geirlaug said...

Já esskan til hamingju með afmælið aftur...það er satt...ef að maður er ánægður með lífið eins og það er þó að það sé ekki þessi fullkomna pakning(kall, barn, skutbíll og hundur/köttur) þá er það bara að vera ánægður með lífið og það sem maður er að gera.
Kv. Anna Geirlaug

Anonymous said...

Til hamingju með daginn mín kæra!

sko mín kæra - ég sé mig ekki sem gamla 34 ára kellingu með krakka, þó svo ég eigi krakka og sæki hann úr leikskóla go þarf að fara í búð og kaupa í matinn ha ha ha
ég er bara 27 líka :)
en ég horfi á konur sem eru jafnvel yngri en ég en samt "eldri" fattaru ... hehe
ég á ekki kall, kött né hús með hvítri girðingu, en ég er svo sátt með þetta allt saman líka :)
eiguð góðan dag mín kæra !