Friday, June 27, 2008

Vakin af blaðamanni

já svei mér þá held að þetta hljóti að vera eina skiftið á æfinni sem ég lendi í þessu að síminn vekji mig af værum blundi og það er blaðamaður í símanum :)
var ágætt því ég ekki farin að pakka eða neitt fyrir hamingjudagana...
well I'm off hér fyrir neðan er linkur á fréttina sem var ástæðan fyrir þessu!!

http://visir.is/article/20080627/LIFID01/212878826

Wednesday, June 25, 2008

Hamingjusöm á Hólmavík




Jæja þá er gamla konan ég að detta í 3ja daga helgarfrí og þrátt fyrir dýrann bensíndropann ætla ég að skella mér á Hólmavík. Þar eru Hamingjudagar (http://www.hamingjudagar.is/) um helgina og mér veitir ekki af að fara og vera innan um ættingja og njóta hamingju eina helgi eða svo.. vona bara að veðrið verði almennilegt. Fór síðast fyrir tveimur árum þá var rigning alla helgina!! En nú á að vera ágætis veður held ég!!
:) njótið ykkar um helgina hvar sem þið eruð :)