Thursday, June 5, 2008

úff .....ég endurtek... HVER VILL MEÐ???


Sat, 10/04/0808:00 PM
WaMu Theater At Madison Square GardenNew York, NY
Nick Cave & the Bad Seeds

FLUG: út: föstud.3 okt heim: þriðjud.7 okt 50.500 á mann
Tónleikar: ca 60 dollarar á mann
hótel: http://hotelpenn.com/ hinum megin við götuna!! um 10 þús nóttin , sennilega hægt að fá betra tilboð samt!!

ég endurtek hver kemur með??

Hver vill með??????

Wed, 07/23/0808:00 PM
Madison Square GardenNew York, NY
George Michael

ég er að missa mig... nánast búin að bóka flugið!! held ég mundi falla í yfirlið eða pissa á mig :)

Anna Geirlaug 32 ára og Karen Sif 10 ára


Rosa knús frá mér alla leið norður til ykkar beggja...

Monday, June 2, 2008

Mánudagsveiki

úff ég held að ég sé orðin gömul, amk er ég ekki alveg að höndla party og drykkju eins vel og hér áður!!
Ég fór ásamt fleirum góðum konum í útskriftarpartý hjá Elínu þroskaþjálfa með meirapróf ;) til hamingju Elín!
rétt komst heim, skyl ekki alveg hvernig ég fór að því að opna dyrnar og koma mér í bólið... en hef varla komist úr því síðan, og n.b. þetta var á laugardagskvöldið!!
Átti reyndar svakalegann dekurdag í dag, fór í fótsnyrtingu í morgun og nudd í hádeginu mjög svo gott :) en úff fæ enn hroll ef ég hugsa um bjór og hvað þá Opal ojbarasta