Saturday, May 24, 2008

veiðihár

Anna setti á mig þvílíku gerfiaugnahárin! skellti inn mynd af því til gamans ;)

Friday, May 23, 2008

grillveisla og partý


Jæja þá bættist í hóp okkar heilsunuddara nokkrir í dag, og þar á meðal hún Valdís. ég var mjög dugleg að hjálpa henni að safna tímum, fórnaði mér algjörlega í að liggja á nuddbekknum hjá henni aftur og aftur :) í tilefni af því að hún varð þrítug í vikunni og því að nú er hún orðin Heilsunuddari þá bíður hún mér og fleiri "fórnarlömbum" í gryll og e-ð stuð í kvöld...
Til hamingju Valdís mín .......... ég ætla að fara að drífa mig í sturtu og gera mig sæta fyrir þig.. (þarf reyndar ekki mikið að hafa fyrir því, vill svo vel til að Anna Geirlaug er stödd hér að taka sveinsprófið sitt í snyrtifræðinni og hún ætlað að sparsla í svipbrigðarlínurnar)
skál :)

Til hamingju Helga Dröfn og Lalli


Tuesday, May 20, 2008

Til hamingju með afmælið Valdís


úff get svarið að það á helmingur manna afmæli í mai, hvað er eigjinlega á seiði 9 mánuðum áður??

Sunday, May 18, 2008

3ja daga helgarfrí :) og meiriháttar pissustand!

Já hef sko haft það gott um helgina, fríi föstudag, laugardag og sunnudag. Dagarnir voru notaðir í svolítið heimsóknarráp, hef ekki verið dugleg í því undanfarnar vikur.
Beyttist svo í algjöra eiðslukló, keyfti mér smá föt, drasl, afmælisgjöf, einnig ólar og merki á kattarskammirnar, eins gott að þau séu merkt ef þau sleppa út án míns samþykkis eða vitundar :)

Hann Casper minn er með óþekkt og hefur verið að pissa inni undanfarið, byrjaði á að pissa á baðmottuna, og eins ef ég var með handklæði við baðið til að stíga á, þannig að það er sko ekkert lengur á baðgólfinu, það þykir víst hallærislegt í hanns huga.

Svo var það litli ljóti svefnsófinn sem ég hafði keyft í Ikea á 15.þús geggjað ljótur og hann fékk aldeilis að finna fyrir því, hann fékk því að fara á haugana og ég fékk mér lítinn leðursófa, hann er greynilega flottur, fær frið ;)

Svo datt honum í hug að það væri nú líka hallærislegt að hafa mottu í forstofunni, hún fékk nokkrar sprænur, ok ég játaði mig sigraða og hennti henni!

En núna er ég hreynlega að gefast upp því aðalstaðurinn núna er rúmið mitt, já rúmið mitt....

ég hélt kannski að það væri rúmteppið, væri ekki nógu flott, breytti engu að skifta um teppi, ekki ætla ég að henda rúminu þannig að nú voru góð ráð dýr og ég var farin að vera með pissudúk á rúminu þegar ég var að vinna... en svo á föstudaginn fékk ég svo góða hugmynd, skundaði í Rúmfó og fékk mér sturtuhengi sem er svona voða fínt rúmteppi :)

Baráttan heldur svo áfram.....

Til hamingju með daginn Jón Gunnar :)