Friday, April 18, 2008

Akureyri hér kem ég.......


já þessir Akureyringar segja að veðrið sé alltaf best fyrir norðan og þar skíni sólin nánast alla daga allt árið...

ég ætla að tjékka á þessu um helgina, kíkja á liðið mitt , ömmu, bræður ,viðhengi og afleggjara þeirra..

svo ekki sé minnst á litlu prinsessuna sem fæddist í dag hjá mínum vinum í Álfabyggðinni, þau eru orðin svo rík, 3 litlar dömur (mislitlar þó) Gæi er í algjöru kvennaveldi!!

já já þetta verður fínt, kem svo baka á sunnudagskvöldið, vonandi alsæl með hve yndislegur nýju kagginn reyndist á sinni fyrstu alvöru langferð :)

Tuesday, April 15, 2008

og hvað ert þú svo gömul...????



sagt með sama tóninum í röddinni og Joey í Friends notar þegar hann spyr gellurnar" how are you doing"
Ég dó úr hlátri!! :) þvílík lína!!!
ég asnaðist á austfirðingaball á Plaeyers á laugardagskvöldið með 2 góðum konum, stóð við barinn að kaupa e-ð frískandi þegar ég fékk þessa línu ...... gat ekkert annað en hlegið, spurði svo gaurinn því í ósköpunum hann spyrði! Þetta væri nú ekki vinsæl spurning hjá konum, ja nánast á bannlista (amk hjá sumum, ég veit vel að ég er ekki deginum eldri en 25 ;)
Þá sagði greyið .... "ja ég vil ekki lenda í því að reyna við einhverja dömu sem er mikið yngri en ég, hvað þá mikið eldri, vil bara vera viss.."
ég spurði hve gamall hann væri, jú fertugur, ég bara óskaði honum bara vel að lifa, hann væri alltof ungur fyrir mig tók ölið og hélt áfram að skemmta mér með vinkonum ....
er það ekki til þess sem maður fer út að dansa ég bara spyr ??