Friday, March 21, 2008

Þvottadagur



ég tók mig ekki alveg svona vel út þegar ég var að þrífa bílinn áðan ;)
komst algjörlega að því að ég er léleg bílaþvottakona, enda getur maður ekki verið góður í öllu ekki satt? en það er e-ð við svona veður sem hvetur mann til að skola af bílnum og fara út að keyra..
lét mér nægja að skola af bílnum, fer kannski út að keyra á morgun, maður tímir því nú varla 2 daga í röð (fer ekki í bensínverðsumræður, verð bara pirruð)
Planið hjá mér er að fara á Selfoss á morgun :)
ef ég kemst framm úr yndislega rúminu mína þ.e.a.s.

Thursday, March 20, 2008

Gæðablóð

komst að því í gær að ég er með gæðablóð, allt leit vel út.. :)
mikið er ég fegin :)

Tuesday, March 18, 2008

jæja þá er komin þriðjudagur


..... og ég er að skríða saman efir helgina sem fór að mestu leiti í vinnu, var kvölvaktir föst, lau og sun. kvöld.. gekk vel með grislingana, en var andlega búin þrátt fyrir það af öðrum ástæðum!
En allt gott núna, búin að hvíla mig, tók daginn snemma og var komin á ferðina kl.9, átti tíma hjá lækni kl. 9-20 var bara að fá beiðni fyrir blóðprufu, kominn tími til að tjékka á kellunni... jú og svo náttlega fór ég upp í fossvog í blóðprufuna eins og ég hef gert oft oft áður, en omg.. hélt að konan þar mundi gera útaf við mig, hún hitti ekki æðina, og mjakaði nálinni út og suður, endaði með að ég bara sagði Áii!! þá ákvað hún að prufa hina hendina, gekk betur :)
ég nuddaði svo eitt nudd og er nú að fara á táknmálsnámskeið, þar er skemmtilegt, við gerum okkur alltaf að fífli allar saman, magnað að læra táknmál og töluvert erviðara en ég átti vona á , þetta er algjörlega nýtt tungumál, en skemmtilegt!!
ég hugsa svo að kvöldið fari bara í leti ja eða kannski mosaic, er búin að vera dugleg í því undanfarið... jæja kötturinn kallar, verð að skreppa með hann út að labba