Wednesday, May 14, 2008

nudd


alveg nauðsynlegt ;) sem oftast!! Takk Valdís mín,

Monday, May 12, 2008

12 mai :)

Til hamingju með afmælið Guðrún Lilja

góður dagur loksins :)



Já síðustu dagar hafa ekki verið skemmtilegir, vaknaði drulluslöpp á fimmtudaginn en dreif mig samt til tannsa sem gerði mig endajaxlinum og nokkrum þúsundköllum fátækari ..

eftir að heim var komið helltist flensudruslan yfir mig af fullum krafti... helgin fór sem sagt í hor hósta hita og allt sem því fylgir, pínu ervitt með svaka holu í gómnum, bannað að hnerra, var alveg eins og fáviti að hnerra með opinn munninn til að kæmi ekki mikill þrýstingur og allt færi í klessu, átti nóg með horið, vildi ekki blóð líka, úff nóg um það ;)

en í dag er kominn nýr og betri dagur, dreif mig í vinnu í morgun eftir að hafa tilkynnt veikindi alla helgina, reyndi að standa mig þar en meira að segja sagði eitt barnið (þegar ég var í hóstakasti "ohh Harpa þú skallt bara fara heim aftur, þú ert sko ennþá veik!" en það er að duga eða drepast bara, kláraði mína vakt og kom hér heim og reif af rúminu og viðraði sængina, núna er ég nýskriðin úr baði á leið upp í hreynt og ilmandi bólið....

hvað er betra???