Jæja þá bættist í hóp okkar heilsunuddara nokkrir í dag, og þar á meðal hún Valdís. ég var mjög dugleg að hjálpa henni að safna tímum, fórnaði mér algjörlega í að liggja á nuddbekknum hjá henni aftur og aftur :) í tilefni af því að hún varð þrítug í vikunni og því að nú er hún orðin Heilsunuddari þá bíður hún mér og fleiri "fórnarlömbum" í gryll og e-ð stuð í kvöld...
Til hamingju Valdís mín .......... ég ætla að fara að drífa mig í sturtu og gera mig sæta fyrir þig.. (þarf reyndar ekki mikið að hafa fyrir því, vill svo vel til að Anna Geirlaug er stödd hér að taka sveinsprófið sitt í snyrtifræðinni og hún ætlað að sparsla í svipbrigðarlínurnar)
skál :)
3 comments:
Góða skemmtun sæta! Og takk fyrir samveruna í vikunni.
Áfram Ísland ... hehe ... líklega hefur Anna Geirlaug verið hæstánægð með að Eurobandið komst áfram. Sé hana fyrir mér :)
Kossar & knús
T
takk takk þú varst sko rosa sæt!!! vona að þú hafir endað heima!!! kveðja Valdís
Til hamingju með daginn Valdís. Afmæli og útskrift
Kveðja Helga Dröfn
Post a Comment