Sunday, April 27, 2008

Sumar og sól??


Gleðilegt sumar :) sérstakar kveðjur í snjókomuna fyrir norðan.......
ég hef góða tilfynningu fyrir sumrinu, já leggst bara vel í mig, er nú ekki með mikil planað svosem, eitt brúðkaup, eitt ættarmót og hvur veit nema maður skelli sér á hamingjudaga á Hólmavík.
Verð í sumarfríi í 4 vikur frá 20 julí. Stefnan er einnig tekin á að keyra e-ð austur, hef ekki komist lengra an ca. að Bakka (og á Seyðisfjörð hinum megin frá) heilmikið óskoðað þar og ku vera fagurt!!
Ég er búin að vera að drukkna í vinnu, mikið að gera í nuddinu, er farin að vera bókuð nánast 2 vikur framm í tímann, og gleymi oftast að skrifa mig á frídaga... Eins hefur verið mikið líf og fjör í vinnunni, er yfirleitt ekki aðgerðarlaus þar!
Casper er að gera mig geðveika, hefur tekið upp á því aftur að pissa inni, þ.e.a.s. ekki í kassann sinn... nýji uppáhaldsstaðurinn er sængin mín, held að hann sé að mótmæla því að ég er lítið heima til að fara með hann í gönguferðir og dekra við hann!! en mjög svo óskemmtilegt að koma heim og það er búið að míga í sængina :( miklar pælingar hafa verið í gangi hjá mér og "krökkunum mínum" hvað eigi að gera við hann, setja á hann bleyju??? ;)
jæja nóg bull í bili, ætla að fara að knúsa Casper svo rúmið haldist þurrt

5 comments:

Anonymous said...

OOOhhhhh hversu ósmekklegur getur maður verið? (eða köttur ef því er að skipta!) Fyrr má nú aldeilis vera mótmælaaðgerð!

Gangi ykkur vel að finna meðalveg í þessu máli. Og sumarfríspælingar hljóma vel. Ég fór suður og austurlandið í fyrra svo ég held að ég taki norðurland (skagafjörð og langanesið) í ár. EF veður leyfir þ.e.a.s. Annars nóg eftir að skoða víða um landið. Satt best að segja.

Harpa said...
This comment has been removed by the author.
Harpa said...

já já gaman að því :) who ever you are?? :)

Anonymous said...

úps - þetta ku hafa verið ÉG Helga Dröfn...

Ertu ekki skyggn?

Harpa said...

hehe jú mig grunaði þig manna mest Helga Dröfn :)