já þessir Akureyringar segja að veðrið sé alltaf best fyrir norðan og þar skíni sólin nánast alla daga allt árið...
ég ætla að tjékka á þessu um helgina, kíkja á liðið mitt , ömmu, bræður ,viðhengi og afleggjara þeirra..
svo ekki sé minnst á litlu prinsessuna sem fæddist í dag hjá mínum vinum í Álfabyggðinni, þau eru orðin svo rík, 3 litlar dömur (mislitlar þó) Gæi er í algjöru kvennaveldi!!
já já þetta verður fínt, kem svo baka á sunnudagskvöldið, vonandi alsæl með hve yndislegur nýju kagginn reyndist á sinni fyrstu alvöru langferð :)
1 comment:
Góða ferð norður baby! Hlakka til að heyra hvernig druslan drífur í langferð.
KNÚS Helga Dröfn
Post a Comment