hefur verið frekar lítið að gera, en samt voða mikið að gera!
hef verið að vinna frekar mikið, síðustu 3 helgar en virku dagarnir frekar rólegir.
Nuddið hefur róast heilmikið síðustu 3 vikur en held að það sé að fara að glæðast aftur,
en aðalgallinn að fólk vill helst koma núna, þá er það komið í klessu af kreppukjaftæðinu og ákveður að plæsa á sig tíma og getur ekki beðið því það er í svo mikilli klessu....
Annars fórum við heilsunuddararnir út að borða og á skemmtun eins og vaninn er á fyrsta vetrardag, ég var að vinna til 4 fór svo heim í gótt bað með einn ískaldann og sjænaði mig, ferlega næs.. Ég gerði þjónustupíuna pirraða á Caruso strax pirraða þegar hún tók niður pöntunina, hún hefndi sín og tók diskinn af borðinu hálfkláraðann þar sem ég skrapp aðeins á klósettið að pissa!
Eftir fínan mat rölti ég með liðið (eins og ekta ungamamma) á Rosenberg og þar hlustuðum við á tónleika með Ljótu hálfvitunum, sem voru geggjað fyndnir og skemmtilegir að vanda!
*Frammundan er að rembast við að klára að taka í gegn hérna hjá mér, á von á sendingu að norðan, gamaldags skenk/snyrtiborði frá ömmu, veit ekkert hvar ég pota því en einhverstaðar mun það smella!
*Svo fer ég norður (11 okt) meinti 11 nóv að sjálfsögðu og verð í heila 5 daga.
Pabbi gamli verður sextugur, maður verður nú að mæta þá!
*svo verð ég að passa mig voða vel, það er ólétta að ganga þannig að ég ráðlegg öllum sem vilja forðast svoleiðis ástand að krossa lappirnar.
Myndin er tekin á laugardagskvöldið þegar Fjóla kennarinn minn í nuddskólanum var að fikta í mér, e-ð að laga loftnetið sagði hún ;)
jæja þangað til næst......
Monday, October 27, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
7 comments:
blessuð skvís...
hlakka til að hitta þig þegar þú kemur norður þann 11 nóv...;)
heyrumst kveðja Guðbjörg
Ólétta að ganga? Hélt að sú pest væri í rénun í bili. Amk í kringum mig hehehe .. En það styttist mögulega í næsta tímabil hihihi..
Kindin Krulla
Frú krulla er e-ð sem þú þarft að segja mér??
Þarf ég að fara að taka úr fyrir holunni í nuddbekknum næst þegar þú kemur :):)
jámm ég vona að þú sért að koma 11.okt - annars hefði ég misst af þér :( - enég vil fá að hitta þig mín kæra !! knús knús!
djí - vissi ekki að það hefði verið hægt að misskilja þetta svona illa!
Nei heldurðu að ég hefði drukkið svona stíft með þér um síðust helgi ef þú þyrftir að taka úr bekknum næst? Ég ætla nú að koma fljótlega í nudd.
Ég meinti nú bara með fólkið í kringum mig HAHAHAHAHAHa var svo svakalega mikið að gera í að kaupa sængurgjafir síðastliðin 2 ár, núna er það rólegra. Bara Tinna :)
Ég læt þig nú vita öðruvísi þegar ég má vera að því að fara af stað HAHAHAHA
Frú Krulla
hahaha þetta var algjört grín litli krulluhaus!!
tók alveg eftir brjórnum sem rann ljúflega ofaní þig ;)
Rosa sæt með ljósa hárið - hlakka til að sjá þig 11.
knús & kram
T.
Post a Comment