Saturday, September 20, 2008

Helgarfrí



Í gærkvöldi skellti ég mér með Huldu á Cafe Rosenberg og hlustuðum á kallinn hennar góla og haga sér eins og geðveikislega (hanns orð) veit ekki hvort það eru þessir nokkru bjórar sem ég drakk eða hvað, en þeir verða betri við hverja hlustun strákarnir..
Það er svo gott að vera komin aftur með stað sem manni líður vel á niðrí bæ.
Var alveg hætt að fara í bæinn fannst alltaf allt vera troðið af einhverjum smákrökkum allsstaðar, eða ætli ég sé að eldast?? nei nei getur ekki verið.
Í dag var ég svo vakin vel fyrir hádegi og var bara annsi hress, skellti mér í mennigarferð með Valdísi, við erum orðnar svo menningarlegar að það er svakalegt, röltum í gegnum Kolaportið og ég er ekki enn búin að jafna mig eftir það!!!!!
Við fórum á listasafn, kaffihús og enduðum svo í Rumfó þar sem ég verslaði mér nýja sæng þar sem sú gamla er farin að anga óþægilega af kattarhlandslykt. Casper hefur hagað sér mjög vel síðan hann varð aðalkötturinn á heimilinu, hefur ekkert pissað inni eða verið með neina stæla, er bara alsæll með að eiga mig aleinn, leggst ofaná brynguna á mér malandi öll kvöld..
Af Rúsínu er gott að frétta, gengur vel á nýja heimilinu bara, þær eru svakalega ánægðar með hvor aðra heyrist mér, fer þangað í heimsókn á næstu dögum að aðstoða nýju mömmuna að snyrta feldin og kenna henni svona hvernig er best að hugsa um hann, enda enginn smá feldur..


Jæja núna ætla ég að skríða í bólið með nammipoka, malandi kött og sjónvarpsfjarstýringuna :)

3 comments:

Anonymous said...

Já menningarlegar þykir mér.

Af hverju ertu enn að jafna þig eftir Koló? Hvað var svona rosalegt þar? (ég er sko rosa vön því svoooo... )

Frúin :)

Harpa said...

úff, ég fer náttlega ekki oft þarna í kolaportið, kannski 1 x á ári.. það var svo mikið af skrítnu fólki þarna, skrítnu skrítnu... fólk á táttfötunum með maskara niðrá kinnar, í magabolum með fellingarnar lafandi um allt. jeminn, kannski er ég mest í sjokki yfir sjálfri mér hvað ég var agndofa ;)

Anonymous said...

já verð að segja að það er ekki oft sem maður heyrir Hörpu fussa upphátt.... algjör snilld! takk fyrir daginn dúlla!