
Thursday, August 14, 2008
Monday, August 11, 2008
Afmæli
vel heppnað ættarmót :)
Ættarmótið var mjög skemmtilegt og komu ótrúlega margir, held að talan hafi farið upp í ca. 90 manns af þeim ca. 110 afkomendum sem komnir eru undan ömmu og afa.. Föstudagskvöldið fór aðallega í að fólk var að tínast á svæðið frá 4 og framm eftir allri nóttu, setja upp tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og bíla. Fólk labbaði svo um og spjallaði og kynnti sig, því mikið af þessu fólki hafði ekki sést síðan amma var ung nánast. algeng setnig var, "ég man eftir þér svona litlum" Góð stemmning var á tjaldsvæðinu um kvöldið, Ella kveiktu upp í arinkubbum og safnaðist liðið saman þar í kring, Ari spilaði á gítar og mikið var sungið og aðeins sötrað af bjór!
Nóttin var köld fyrir tjaldbúa og sváfu sumir annsi lítið, en voru þó ótrúlega hressir á laugardeginum, þá var keyrt að Kaldrananesi og skoðað hvar bærinn Bjarg stóð og reyndu elstu systkinin að rifja upp í sameiningu húsaskipan og sögur frá æsku þeirra, Ási kunni margar góðar af prakkaraskap sínum þarna..
Þegar aftur var komið á Drangsnes og fólk búið að fá sér kaffibolla var haldin keppni í fótbolta og var mikill hugur í mönnum, strákarnir ætluðu að rústa þessum gömlu, og taka stelpurnar í nefið. Þeir allra hörðustu mættu vöpnaðir takkaskóm, keppnisbúninga og með svakalegt keppnisskap ( ég sá nú reyndar að sumir voru nánast búnar eftir upphitunina en það er annað mál )
Eftir harða keppni í boltanum sem fór á allt annan veg en upphaflega var ætlað (Þeir gömlu tóku sko liðið í nefið og var ótrúlegt að sjá hvað þeir voru í flottu formi kallarnir) fóru margir í sund eða bara að slaka sér framm að mat. Um 6 leitið var kveikt upp í 3 stórum gryllum og við þau var staðið og grylluð hver steikin á fætur annari, enda ekki vanþörf á þegar annar eins fjöldi er samankominn! Eftir matinn tókum við Igga okkur til og vorum með spurningarkeppni, mér þótti ekki annað hægt en aðeins að grylla þau systkinin aðeins ;) gerðum með spurningum um hvort annað, fjölskyldur og eins sögu Hólmavíkur og nágrennis.. ég var búin að sjóða saman einhverjar spurningar sjálf og leitaði aðstoðar maka nokkura til að fá einhverjar ábendingar, þetta var mjög skemmtilegt.. úrslitin voru mjög jöfn, munaði einungis einu stig, en ég fékk að heyra að það var nú bara því strákarnir fengu eilítið erviðari spurningar en þær ;)
Hér eru systurnar Finna, Dídi, Linda og svo fékk ég hana Huldu Svans til að filla skarðið þar sem mamma kom ekki....
Hér er bræðurnir Biggi, Ingvar , Bjössi og Ási
Eftir þetta var pub quiz, dansað, spjallað og allir mjög hressir... og um 2 leiið um nóttina, sendi ég síðusta út úr húsinu, slökkti ljósin og skellti í lás, þá þegar var búið að kveikja eld og gítarspil og söngur barst neðan af fótboltavelli.. Allt semsagt gekk að óskum og glaðir ættingjarnir tíndu saman dótið sitt á sunnudeginum og héldu heim á leið.....
Wednesday, August 6, 2008
Prinsessan á bauninni
Það er ekki spurning að ég er algjör prinsessa, er að fara á ættarmót um helgina og er alveg að missa mig yfir að þurfa að sofa í tjaldi ;) en þetta eru bara 2 nætur ég veit að ég lifi það af, sérstaklega þar sem ég er búin að fjárfesta mér í dýrindis vinsæng sem er með innbyggðri pumpu!!En það sem er verra er að prinsessu rúmið mitt er bilað, get ekki lift upp bakinu og í dag kom gæi frá búðinn sem ég keyfti það og í ljós kom að öxullinn sem lyftir bakinu er að liðast í sundur, tek framm að hann er úr járni!
Mætti halda að ég væri alltaf með einhverja jaxla uppí hjá mér og hamaðist á fjarstýringunni, en það er nú víst ekki svo skemmtilegt (amk. ekki svona á hverju kvöldi)
erum reyndar stundum 3 í rúminu en kettirnir eru ekki 50 kg. hvor, rúmið á að þola 200 kg. vonandi kemst þetta í lag fljótlega og ég get farið að hafa það mjög kósý aftur..
En já um hádegi á morgun fimmtudag bruna ég norður til Hólmavíkur á fína glansandi bílnum mínum (já mér leiddist svo mikið að ég eyddi 3 tímum í að tjöruhreynsa, sápuþvo, þurrka og bóna kaggann) Ættarmótið verður á Drangsnesi og mér heyrist verði um 100 manns, þannig að stuðið verður líklegast eftir því, jæja nú gengur þetta ekki lengur ætla að drullast til að taka mig til.. krossið fingur og óskið að það rigni ekki á prinsessuna í tjaldinu um helgina :)
Sunday, August 3, 2008
heima er best!!
já þá er maður komin heim eftir nokkra daga á Akureyri, ég flúði úr bænum þegar stuðið var að byrja á föstudagsnóttina fljótlega eftir miðnætti og var að keyri í hlaðið heima að verða 5 um morguninn!
Vikan var frekar skrítn, veðrið gott :) gríðarlegur hiti og sól, ég fékk ca 300 freknur.
Óhjákvæmilega voru miklar pælingar um dauðann, jarðafarir, minningargreinar, hefðir og margt í þeim dúr. Ég komst að því að ég hef mjög sterkar skoðanir á þessum hlutum, hafði aldrey verið að ræða þetta neitt mikið en svo þegar upp kom hafði ég nóg að segja eins og mér einni er lagið.. t.d. minningargreinarnar í mogganum, það hvarflaði ekki að mér að skrifa í moggann um hvað amma mín var góð kona,handlagin og alltaf með hlaðið borð af bakkelsi þegar maður kom til hennar, hver er tilgangurinn að skrifa þetta í moggann og þakka henni þar fyrir að vera hún og allt sem hún gerði, ég sé nákvæmlega engann tilgang með því og fynnst í raun frekar hallærislegt að skrifa svona lagað fyrir annað fólk að lesa, jú auðvitað má fólk gera þetta mín vegna, það er þeirra mál en einhvernvegin er þetta samt orðið eins og maður eigi að skrifa og þyki lélegur ef maður gerir það ekki, þetta sé nú lágmarksvirðing við þann sem farinn er að skrifa um hann.
Ég skrifaði ekki neitt og skammast mín ekki fyrir það, ég hugsaði fallegar hugsanir um ömmu mína og geri oft, ég kvaddi hana með faðmlagi og kossi á spítalanum, hún fann það og vissi hvað mér þótti vænt um hana.
Ég stórefast um að mogginn sé á þeim stað sem hún er núna og hún sytji með kaffibollann og lesi kveðjurnar!
Vikan var frekar skrítn, veðrið gott :) gríðarlegur hiti og sól, ég fékk ca 300 freknur.
Óhjákvæmilega voru miklar pælingar um dauðann, jarðafarir, minningargreinar, hefðir og margt í þeim dúr. Ég komst að því að ég hef mjög sterkar skoðanir á þessum hlutum, hafði aldrey verið að ræða þetta neitt mikið en svo þegar upp kom hafði ég nóg að segja eins og mér einni er lagið.. t.d. minningargreinarnar í mogganum, það hvarflaði ekki að mér að skrifa í moggann um hvað amma mín var góð kona,handlagin og alltaf með hlaðið borð af bakkelsi þegar maður kom til hennar, hver er tilgangurinn að skrifa þetta í moggann og þakka henni þar fyrir að vera hún og allt sem hún gerði, ég sé nákvæmlega engann tilgang með því og fynnst í raun frekar hallærislegt að skrifa svona lagað fyrir annað fólk að lesa, jú auðvitað má fólk gera þetta mín vegna, það er þeirra mál en einhvernvegin er þetta samt orðið eins og maður eigi að skrifa og þyki lélegur ef maður gerir það ekki, þetta sé nú lágmarksvirðing við þann sem farinn er að skrifa um hann.
Ég skrifaði ekki neitt og skammast mín ekki fyrir það, ég hugsaði fallegar hugsanir um ömmu mína og geri oft, ég kvaddi hana með faðmlagi og kossi á spítalanum, hún fann það og vissi hvað mér þótti vænt um hana.
Ég stórefast um að mogginn sé á þeim stað sem hún er núna og hún sytji með kaffibollann og lesi kveðjurnar!
Friday, July 25, 2008
SUMARFRÍ
Jæja þá er sumarfríið loksins byrjað :) er í heilar 5 vikur í fríi frá Rjóðri....held að ég muni nú ekki halda út nema svona 3 vikur frá nuddinu, maður þarf að hugsa vel um kúnnana sína, sum þeirra hafa látið eins og lífið geti ekki haldið áfram hjá þeim án mín, held að það séu nú töluverðar ýkjur en ég held að ég kunni heldur ekki að vera í fríi mikið lengur!
ég hafði nú engar sérstakar áætlanir varðandi sumarfríið mitt, ætlaði að sjálfsögðu e-ð norður og svo bara slaka á.
Er líka búin að sverja við sjálfa mig að fara í gegnum skápana hjá mér á einhverjum rigningardeginum...
en það eru utanaðkomandi áhrifavaldar sem stjórna þessu svolítið hjá mér, ég fer til Akureyrar eftir helgi og verð þar framm að laugardag, elsku amma mín kvaddi þennann heim um daginn og mun þessi vika fara í að kveðja hana og fylgja til grafar.
Helgina eftir versló er svaka ættarmót planað og ég mun fara til Hólmavíkur og Drangsnes þá. Verður örugglega svakalegt stuð..
helgina þar á eftir ætlar Gunni frændi minn að ganga í það heilaga með Huldu sinni, og ég fer að sjálfsögðu þangað!
Þetta frí verður örugglega liðið áður en ég veit af :)
vonandi hafið þið það gott og liggið í leti eins og ég !
Monday, July 14, 2008
Til hamingju Hulda og Eyvindur
Þetta var yndisleg athöfn og kvöldið mjög skemmtilegt.
þetta var sko ekki afslöppunarhelgi hjá mér. keyrði norður á fimmtudaginn, beint upp á spítala til ömmu og kíkti svo aðeins í búststað hjá Tinnu og fjölsk.
Á föstudaginn fór ég í klippingu til Guðnýar vinkonu sem var svo sæt að gera mig fína þrátt fyrir að vera í sumarfríi.. Við Rósa fórum svo inn í fjörð og fengum lánaðann tjaldvagn og brunuðum yfir í Reykjadal þar sem allt var á fullu að undirbúa matinn og salinn. Við hjálpuðum aðeins til eftir að hafa tjaldað blessuðum vagninum. Anna Geirlaug litaði svo á mér augabrúnirnar og þá var ég orðin svo rosalega sæt og fín ;) Svo var komið að því að prinsessan á bauninni svæfi í tjaldvagninum, úff mér gekk svosem ágætlega að sofna en svaf bara svona sæmilega, bakið fann alveg að það var ekki í fína prinsessurúminu sínu :) en okey laugardagurinn fór í það skríða úti í skógi og klippa lyng, birki og fleira sem við notuðum svo í að skreyta salinn, sviðið sem athöfnin fór framm á og eins í brúðarvöndinn... Allt heppnaðist voðalega vel og vorum við mjög ánægð með útkomuna.. kvöldið var fínt eins og fyrr sagði, mikið hlegið enda ekki von á öðru það sem vinir og vandamenn þeirra eru nú annsi skrautlegir flestir...
klukkan var um 6 á sunnudagsmorgun þegar við skriðum að nýju inn í tjaldvagninn og prinsessan ég náði að sofa í 4 klukkutíma og gat ekki meir, vorum því búnar að pakka saman og komnar inn á Akureyri um 3 leitið, eftir heimsókn á spítalann til ömmu brunuðum við heimá leið og er óhætt að segja að augnlokin hafi verið orðin annsi þung síðustu kílómetrana... og dagurinn í dag fór aðalega í að jafna mig eftir svefnleysi og þreytu eftir helgina.
Eitt er á alveg á hreinu, ég á besta rúm í heimi og ég mundi vilja pakka því saman og taka með mér allt sem ég fer ;)
Subscribe to:
Posts (Atom)

